- Auglýsing -

Ákvörðun félagsins að vera með fókus á kvennaliðinu

- Auglýsing -


Athygli vakti á dögunum þegar tilkynnt var hvaða íslensku félög taka þátt í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð að karlalalið Vals verður ekki með eftir að hafa nánast sleitulaust tekið þátt í Evrópukeppni félagsliða síðasta áratuginn. Valur var eitt fjögurra karlaliða sem átti þess kost að taka þátt í Evrópukeppninni. FH, Fram og Stjarnan ætla að láta slag standa að þessu sinni.


Fannar Örn Þorbjörnsson í stjórn handknattleiksdeildar Vals segir að það hafa verið ákvörðun stjórnar að skrá aðeins kvennalið félagsins til leiks á næstu leiktíð. Það hafi unnið titla bæði hér heima og í Evrópubikarkeppninni í vor. Stefnan hafi verið sett á að kvennaliðið verði með í Evrópudeildinni, sem er stigi ofar en Evrópubikarkeppnin.

„Þetta var bara ákvörðun félagsins að hafa þennan hátt og vera með fókus á kvennaliðinu. Liðið vann titla hér heima og einnig Evróputitil í vor. Karlaliðið hefur tekið þátt í Evrópukeppni í mörg ár í röð en pásar í eitt ár,“ sagði Fannar Örn í samtali við handbolta.is.

Ekki heyrt af óánægju

Fannar Örn sagðist ekki hafa heyrt að óánægja ríkti innan félagsins vegna þess að karlaliðið hafi ekki verið skráð til leiks. Handbolta.is hafði borist veður af óánægju en samkvæmt Fannari Erni mun það vera úr lausu lofti gripið.

„Ég hef ekki heyrt um neinn kurr innan félagsins vegna þessa,“ sagði Fannar Örn Þorbjörnsson hjá handknattleiksdeild Vals við handbolta.is.

Ísland átti rétt á að senda fimm kvennalið í Evrópukeppni félagsliða en aukasæti fékkst vegna sigurs Vals í Evrópbikarkeppninni í vor. Þrjú nýta tækifærið, Valur, Haukar og Selfoss. Fram og ÍR kusu að afþakka þátttöku.

Fram, Stjarnan og FH leika í Evrópu – Valur situr hjá

Evrópubikarmeistarar í Evrópudeildina – Selfoss brýtur blað – Haukar halda áfram

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -