Áfram bætist í leikmannahóp Víkings fyrir átökin í Grill 66-deild karla. Nýjasta viðbótin er vinstri skyttan Felix Már Kjartansson. Hann kemur til Víkinga frá HK en áður hefur Felix Már verið hjá Fram og eitt tímabil með Neistanum í Þórshöfn.
„Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu nýja tækifæri og hlakka til að taka þátt í metnaðarfullu og spennandi verkefni hjá Víkingi. Mér líst mjög vel á það sem er verið að byggja upp hérna og er fullur af eldmóði að ætla leggja mig 100% fram fyrir liðið,“ segir Felix Már í tilkynningu frá Víkingi í dag.
Í gær var tilkynnt um komu Ísaks Óla Eggertssonar til Víkings. Fleiri munu vera væntanlegir, m.a. leikmenn frá Stjörnunni eftir því sem Handkastið sagði frá á dögunum.
Grill 66-deildir – fréttasíða.
Karlar – helstu félagaskipti 2025