Handknattleiksdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi vetur en Georgíumaðurinn Giorgi Dikhaminjia skrifaði í dag undir hjá félaginu. Dikhaminjia sem er 28 ára gamall er 188 cm á hæð og leikur sem hægri skytta en getur einnig leyst hægra hornið af.
Dikhaminjia er landsliðsmaður Georgíu en hann skoraði meðal annars 9 mörk gegn Íslandi er liðin mættust í Georgíu á nýliðnum vetri. Hann skoraði svo 3 mörk í síðari leik liðanna sem fór fram á Íslandi. Hann kemur til liðs við KA frá Pólska liðinu KS Azoty-Pulawy en þar áður lék hann með HK Mesto Lovosice í Tékklandi.

„Við erum afar spennt fyrir komu hans hingað norður en öll samskipti okkar við Giorgi og hans fólk hafa verið afar jákvæð og fagleg. Það verður afar spennandi að sjá til hans í gula og bláa búningnum og ljóst að hann mun styrkja okkar unga og efnilega lið sem verður að mestu byggt upp af KA strákum,“ segir m.a. í tilkynningu KA í dag.
Giorgi Dikhaminjia til liðs við KA
Karlar – helstu félagaskipti 2025