- Auglýsing -
- Auglýsing -

Jóhanna Margrét skaraði fram úr á Selfossi

F.v. Alexandra Líf Arnarsdóttir, Margrét Ýr Björnsdóttir, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Tinna Sigurrós Traustadóttir. Mynd/Selfos-ÁÞG.
- Auglýsing -

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir úr HK var valin besti leikmaður Ragnarsmótsins í handknattleik sem lauk á Selfossi í kvöld með sigri HK-liðsins eins og getið er um í annarri frétt á handbolta.is.


Jóhanna Margrét sem einnig átti sæti í U19 ára landsliði Íslands sem tók þátt í EM í Norður Makedóníu í sumar fór á kostum í öllum þremur leikjum mótsins. Þverfagleg valnefnd á vegum Ragnarsmótsins var aldrei í vafa um hver hreppti hnossið.


Besti sóknarmaður mótsins var valin Tinna Sigurrós Traustadóttir úr liði Selfoss. Hún hélt uppteknum hætti frá EM U17 ára landsliða á dögunum og skoraði hvert markið á fætur öðru á Ragnarsmótinu með þrumufleygum auk þess að vera örugg á vítalínunni. Tinna Sigurrós skoraði 23 mörk í þremur leikjum.


Varnarmaður mótsins var valin Alexandra Líf Arnarsdóttir, HK, og stalla hennar Margrét Ýr Björnsdóttir skaraði fram úr öðrum markvörðum mótsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -