- Auglýsing -

KA hefur bætt markverði í hópinn

- Auglýsing -


Markvörðurinn Guðmundur Helgi Imsland skrifaði í gær undir samning hjá Handknattleiksdeild KA og tók þátt í sínum fyrsta leik fyrir félagið er hann kom inn á í 29:23 sigri KA á Þór í upphafsleik KG Sendibílamótsins.


Guðmundur Helgi sem er fæddur árið 2004 er efnilegur markvörður sem kemur frá Fjölni. Hann er uppalinn í ÍR en lék einnig með ungmennaliði Vals áður en hann gekk í raðir Fjölnis þar sem hann lék á síðustu leiktíð.

„Það er afar jákvætt að fá Guðmund í okkar raðir en hann er að flytja norður vegna náms og klárt að það mun styrkja hópinn okkar að fá hann í markmannsteymið okkar.

Andri Snær Stefánsson þjálfari liðsins segir hann hafa staðið sig vel á æfingum og komið flott inn í hópinn sem sést vel á því að hann spilaði strax sínar fyrstu mínútur fyrir KA í gær. KA og Þór mætast svo aftur á sunnudaginn í KA-heimilinu kl. 15,“ segir í tilkynningu KA.


Fyrr í sumar tók Svavar Ingi Sigmundsson fram skóna á ný og verður hluti af markvarðateymi KA ásamt Bruno Bernart, Guðmundi Helga og Úlfari Erni Guðbjargarsyni.

Karlar – helstu félagaskipti 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -