- Auglýsing -
Unglingalandsliðskonan Guðrún Ólafía Marinósdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH. Guðrún Ólafía, sem er fædd árið 2008, kemur úr yngri flokka starfi FH og leikur í stöðu línumanns.
Guðrún Ólafía var hluti af öflugu 17 ára landsliði Íslands í sumar sem vann bronsverðlaun á Ólympíuhátíð æskunnar í Norður-Makedóníu og tók þátt í Evrópumóti landsliða í Svartfjallalandi í kjölfarið.
„Guðrún Ólafía er ein af okkar öflugu ungu leikmönnum sem eru koma úr yngri flokka starfinu. Guðrún á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og hlökkum við til að sjá hana láta til sín taka á næstu árum,“ er haft eftir Ágústi Bjarna Garðarssyni formanni handknattleiksdeildar FH í tilkynningu.
- Auglýsing -