Handknattleikstímabilið fer af stað af krafti hér innanlands í kvöld þegar þrír leikir fara fram í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppninnar í handknattleik karla. Keppni verður framhaldið annað kvöld og þá einnig í kvennaflokki en sextán liða úrslitum lýkur á laugardaginn. Leikir átta liða úrslita í karlaflokki fara fram á mánudaginn en á þriðjudag í kvennaflokki.
Um er að ræða Coca Cola-bikarkeppni síðasta leiktímabils sem til stóð að leika í byrjun apríl en varð að fresta vegna enn einnar bylgju kórónuveiru sem þá gekk yfir. Úrslitahelgi Coca Cola-bikarsins verður upp úr næstu mánaðarmótum og verða þá krýndir bikarmeistarar 2021.
Leikir kvöldsins, 16-liða úrslit karla:
Varmá: Afturelding – ÍBV, kl. 18 – sýndur á RÚV2.
Hertzhöllin: Grótta – Stjarnan, kl. 19.30.
Kaplakriki: FH – Haukar, kl. 20.30 – sýndur á RÚV2.
Áhorfendur eru velkomnir á leikina.
Hér getur að líta framhaldið hjá þeim liðum sem vinna leiki kvöldsins og komast í 8-liða úrslit:
Grótta/Stjarnan – KA.
Afturelding/ÍBV – Mílan/Fjölnir.
Víkingur/Valur – FH/Haukar.