Viðureign Íslands og Færeyja í 1. umferð undankeppni Evrópumóts kvenna sem fram fer hér á landi miðvikudaginn 15. október fer fram í Lambhagahöll Framara í Úlfarsárdal. Upphaflega stóð til að leikið yrði á Ásvöllum hvar kvennalandsliðið hefur átt vígi undanfarin mörg ár, allt síðan fyrir heimsfaraldur.
Ástæða þess að HSÍ færði leikinn frá Ásvöllum og í Úlfarsárdal er vinnusparnaður auk þess sem aðeins einn keppnisdúkur EHF er til hér á landi. Vegna viðureignar Fram og Porto í riðlakeppni Evrópudeildar þriðjudaginn 14. október, daginn fyrir landsleikinn, verður að leggja keppnisdúk á leikvöllinn í Lamhagahöllinni. Til að spara vinnu var ákveðið að landsleikurinn færi fram á sama stað sólarhring síðar.
Sama gert í Kaplakrika
Svipað var upp á teningnum á síðasta ári þegar FH og Valur átti heimaleik sama kvöldið í Evrópudeild karla. Þá slógu liðin saman og fóru tveir Evrópuleikir fram í Kaplakrika. Var það í fyrsta sinn sem Valur lék heimaleik í Evrópukeppni í Kaplakrika.
Kvennlandsliðið lék vináttuleik við Pólverja í Lambhagahöllinni í október á síðasta ári og vann með sex marka mun, 30:24.