- Auglýsing -
Svo skemmtilega hittist á í gær að nafnarnir og handknattleiksdómararnir, Hörður Aðalsteinsson og Hörður Kristinn Örvarsson, dæmdu saman viðureign hjá handknattleiksliði Harðar á Ísafirði í Grill 66-deild karla. Hörður mætti þá Víkingi í íþróttahúsinu á Ísafirði.
Nafnarnir máttu til með að smella af sér mynd með fána Harðar í íþróttahúsinu áður en þeir tóku til við að dæma hörkuleik Harðar og Víkings sem síðarnefnda liðið vann með eins marks mun, 33:32.

- Auglýsing -