- Auglýsing -
Þýska 1.deildarliðið MT Melsungen staðfesti í morgun að Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfari hafi verið leystur frá störfum. Fregnir um þetta láku út á föstudagskvöld m.a. í staðarmiðli.
Guðmundur tók við þjálfun MT Melsungen í lok febrúar 2020. Samningur hans við félagið var til loka yfirstandandi tímabils.
Arjan Haenen, aðstoðarþjálfari, tekur tímabundið við þjálfun Melsungenliðsins.
Tilkynningu MT Melsungen má lesa hér.
- Auglýsing -