- Auglýsing -
Handknattleiksdómararnir Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson hafa nóg að gera um næstu helgi þegar þeir dæma tvo leiki á einum sólarhring í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Þeir dæma fyrri viðureign austurríska liðsins MADx WAT Atzgersdorf og A.C. PAOK frá Grikklandi í 3.umferð Evrópubikarkeppni kvenna í Vínarborg á laugardaginn.
Daginn eftir verða Árni Snær og Þorvar Bjarmi mættir til leiks í Korneuburg þar sem þeir eiga að halda uppi röð og reglu í viðureign Union Korneuburg og Hazena Kynzvart frá Tékklandi. Liðin mætast einnig í 3. umferð Evrópubikarkeppni kvenna.
- Auglýsing -



