Þriðja umferð riðlakeppni 32-liða úrslita Evrópudeildar karla fór fram í kvöld. Þar með er þessi hluti keppninnar hálfnaður. Síðustu leikdagarnir verða 18. og 25. nóvember og 2. desember.
Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í 16-liða úrslit sem einnig verða leikin í riðlum í febrúar og mars á næsta ári.
Íslands- og bikarmeistarar Fram taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildar og eiga sæti í D-riðli. Auk þess koma íslenskir handknattleiksmenn við sögu hjá nokkrum öðrum liðum í keppninni.
Hér fyrir neðan eru úrslit 3. umferðar, stuttlega farið yfir hvað íslensku handknattleiksmennirnir gerðu með liðum sínum, að leikmönnum Fram undanskildum.
A-riðill:
Potaissa Turda – Flensburg 26:33 (13:18).
Saint Raphaël – Bidasoa Irun 35:32 (20:18).
B-riðill:
Ostrivia Ostrow – Montpellier 25:38 (11:17)
BSV Bern – THW Kiel 27:35 (16:18).
C-riðill:
Minaur Baia Mare – Skanderborg 27:45 (11:17).
-Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði 10 mörk og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Skanderborg.
RD LL Grosist Slovan – BM Granollers CS 29:34 (12:18).
D-riðill:
HC Kriens-Luzern – Fram 40:25 (23:11).
Elverum – FC Porto 25:29 (12:14).
-Tryggvi Þórsson skoraði ekki mark fyrir Elverum.
-Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði 9 mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Porto.
E-riðill:
MT Melsungen – FTC-Green Collect 33:27 (15:15).
-Arnar Freyr Arnarsson skoraði 6 mörk fyrir MT Melsungen.
HF Karlskrona – Benfica 31:34 (18:18).
-Arnór Viðarsson skoraði 3 mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Karlskrona.
-Stiven Tobar Valencia skoraði 1 mark fyrir Benfica.
F-riðill:
IFK Kristianstad – HC Vardar 32:31 (14:11).
-Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði 2 mörk.
MRK Sesvete – Fenix Toulouse 32:31 (18:15).
G-riðill:
Hannover-Burgdorf – IK Sävehof 27:25 (15:12).
-Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari H.Burgdorf.
-Birgir Steinn Jónsson skoraði 2 mörk og gaf eina stoðsendingu fyrir IK Sävehof.
Tatran Presov – Fredericia HK 27:34 (15:13).
H-riðill:
RK Partizan – Ademar León 25:18 (13:8).
RK Nexe – Kadetten Schaffhausen 29:30 (12:16).
-Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk fyrir Kadetten Schaffhausen.
Úrslit tveggja fyrstu umferða riðlakeppni Evrópudeildarinnar:
Evrópudeild karla “25 – riðlakeppni 32-liða – 2. umferð, úrslit, staðan
Evrópudeild karla “25 – riðlakeppni 32-liða – 1. umferð, úrslit





