- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bjarni framlengir dvölina hjá Val til ársins 2029

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Vals og Bjarni í Selvindi hafa gert samkomulag um að framlengja samning hans við félagið. Nýr samningur gildir til ársins 2029.


Bjarni, sem er 23 ára Færeyingur, kom til Vals frá Kristiansand í Noregi sumarið 2024 og hefur verið mikil ánægja með hans frammistöðu hjá félaginu, segir í tilkynningu Vals. Bjarni hefur undanfarið glímt við meiðsli á öxl en er væntanlegur inn á keppnisvöllinn á næstunni.

„Ég er mjög sáttur með að Bjarni hafi framlengt við félagið. Hann er frábær leikmaður, sterkur einn á móti einum ásamt að búa yfir mikilli skottækni. Að auki er hann góður liðsfélagi og mjög metnaðargjarn. Það er því ánægjulegt að hann verði áfram hjá okkur næstu árin,” sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals í tilkynningu.

Bjarni hefur leikið með yngri landsliðum Færeyja auk þess sem hann hefur leikið 4 A-landsleiki.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -