Elín Klara Þorkelsdóttir landsliðskona í handknattleik er ein af 12 leikmönnum heimsmeistaramóts kvenna sem kemur til greina í vali á besta unga leikmanni HM. Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, stendur fyrir valinu. Verðlaunin eru ætluð bestu keppendum 21 árs og yngri og beina kastljósinu að ungum afburðaleikmönnum, segir í tilkynningu IHF.
Eftir að riðlakeppni HM lauk útnefndu sérfræðingar í þjálfaranefnd IHF 12 leikmenn sem koma til greina. Sigurvegarinn verður valinn í úrvalslið heimsmeistaramóts kvenna í handbolta 2025.
Tilnefndar eru:
Elín Klara Þorkelsdóttir, Íslandi.
Julie Scaglione – Danmörku.
Lyndie Tchaptchet – Spáni.
Nina Dury – Frakklandi.
Nieke Kühne – Þýskalandi.
Viola Leuchter – Þýskalandi.
Petra Simon – Ungverjalandi.
Alieke van Maurik – Hollandi.
Alisia Boiciuc – Rúmeníu.
Thea Kylberg – Svíþjóð.
Mia Emmenegger – Sviss.
Era Baumann – Sviss.


