Færeyingurinn Sveinur Ólafsson var leikmaður 14. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik að mati sérfræðinga Handboltahallarinnar.
Sveinur lék á als oddi með Aftureldingarliðinu gegn KA á fimmtudagskvöld í sigri Aftureldingar. Sveinur skoraði átta mörk í tíu skotum, var með fjögur sköpuð færi og sex stolna bolta. Hann skoraði sex af síðustu sjö mörkum Aftureldingar í leiknum.
Lið 14. umferðar Olísdeildar karla:
Hægra horn: Birgir Már Birgisson, FH 2*.
Hægri skytta: Arnór Snær Óskarsson, Val 3*.
Miðjumaður: Sveinur Ólafsson, Aftureldingu 1*.
Vinstri skytta: Dánjal Ragnarsson, Fram 1*.
Vinsta horn: Ívar Logi Styrmisson, Fram 1*.
Línumaður: Kristján Ottó Hjálmsson, Aftureldingu 2*.
Markvörður: Einar Baldvin Baldvinsson, Aftureldingu 2*.
Varnarmaður: Ingvar Dagur Gunnarsson, FH 3*.
(*Hversu oft í liði umferðarinnar)
Þjálfari umferðarinnar: Sigursteinn Arndal, FH 4*.
Leikmaður 14. umferðar: Sveinur Ólafsson, Aftureldingu 1*.
(*Hversu oft í valinn leikmaður umferðarinnar).



