Chema Rodriguez, landsliðsþjálfari Ungverja í handknattleik karla, hefur valið 20 leikmenn sem hann ætlar að hafa í sínum hóp á Evrópumótinu í næsta mánuði. Ungverska landsliðið verður einn þriggja andstæðinga íslenska landsliðsins á Evrópumótinu en lið þjóðanna mætast í lokaumferð riðlakeppninnar 20. janúar í Kristianstad.
Ísland og Ungverjaland hafa verið saman í riðli á undangengnum þremur Evrópumótum auk heimsmeistaramótsins 2023. Á síðastnefnda mótinu var einnig leikið í Kristianstad. Ungverjar hafa ævinlega reynst Íslendingum harðsnúinn andstæðingur.

Úrslit leikjanna á síðustu stórmótum:
EM 2020 í Malmö: Ísland - Ungverjaland 18:24.
EM 2022 í Búdapest: Ísland - Ungverjaland 31:30.
EM 2024 í München: Ísland - Ungverjaland 25:33.
HM 2023 í Kristianstad: Ísland - Ungverjaland 28:30.
Ungverski EM-hópurinn:
Markverðir: László Bartucz (MT Melsungen), Kristóf Palasics (MT Melsungen), Arián Andó (MOL Tatabánya KC).
Hægra horn: Bence Imre (THW Kiel), Zsolt Krakovszki (ETO University HT), Pedro Rodríguez (MOL Tatabánya).
Hægri skyttur: Zoran Ilic (Orlen Wisla Plock), Máté Ónodi-Jánoskúti (USAM Nimes Gard).
Miðjumenn: Gergő Dazekas (Orlen Wisla Plock), Egon Hanusz (Cesson Rennes), Péter Lukács (Elverum), Andrej Pergel (La Rioja).
Línumenn: Bence Bánhidi (OTP Bank-Pick Szeged), Miklós Rosta (Dinamo Búkarest), Adrián Sipos (MT Melsungen).
Vinstri skyttur: Richard Bodó (OTP Bank-Pick Szeged), Patrik Ligetvari (One Veszprem HC), Zoltan Szita (Orlen Wisla Plock).
Vinsta horn: Bóka Bendegúz (KSE Balatonfüred), Bence Krakovszki (MOL Tatabánya).
- Ungverjar leika einn vináttuleik áður en þeir fara til Svíþjóðar. Þeir mæta Rúmenum í Györ í Ungverjalandi föstudaginn 9. janúar.



