- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Mest lesið 5 ”25: Aron, feðgarnir, kveisa, með því sárasta, Viktor Gísli

- Auglýsing -

Á síðasta degi ársins 2025 lýkur yfirreið yfir þær fréttir sem voru oftast lesnar af lesendum handbolti.is á árinu. Undanfarna daga hafa verið birtar 20 greinar sem oftar voru lesnar á handbolti.is á árinu. Nú er komið að þeim fimm sem oftast voru lesnar.

Annað árið í röð snerist mest lesna frétt ársins um Aron Pálmarsson. Hann lagði skóna á hilluna um mitt árið en átti eftir það að koma við sögu í fréttum, síðasta í desember og þótt hún fjallaði ekki beint um handbolta þá sló hún í gegn.

Myndasyrpa Hafliða Breiðfjörð ljósmyndara af feðgunum Gústavi Daníelssyni og Björgvini Páli Gústavssyni eftir leik Íslands og Kúbu á HM snemma árs dró að sér lesendur.

Frétt um magakveisu sem herjaði á leikmenn 21 árs landsliðsins meðan þeir tóku þátt í heimsmeistaramótinu í Kaíró í ágúst vakti athygli alveg eins og játning landsliðsþjálfarans Snorra Steins Guðjónssonar eftir að þátttöku Íslands á HM lauk.

Frábær frammistaða Viktors Gísla Hallgrímssonar í leikjum ársins vakti athygli og ein þeirra fregna rataði inn á lista yfir fimm vinsælustu fréttir ársins.

Hér fyrir neðan eru þær fréttir sem eru í efstu fimm sætum yfir fréttir sem oftast voru lesnar á handbolti.is 2025. Gleðilegt ár 2026!


1. sæti:

2. sæti:

3. sæti:


4. sæti:

5. sæti:

Upprifjun 1: Mest lesið 1 ”25: Afsökun, kvaddi, ekki svikarar, högg og til aganefndar

Upprifjun 2: Mest lesið 2 ”25: Hver er?, var á leiðinni í flug, tvær hliðar, óánægðir Danir, var brugðið

Upprifjun 3: Mest lesið 3 ”25: Áhyggjur, slæmar fréttir, gerði það gott, næsti leikur, í óleyfi

Upprifjun 4: Mest lesið 4 ”25: Úr lausu lofti gripið, strákarnir, leiðindi, dapurt ástand, tóku til fótanna

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -