- Auglýsing -
Saga Sif Gísladóttir, markvörður Vals, hefur verið kölluð inn A-landslið kvenna í handknattleik sem mætir Svíþjóð í undankeppni EM 2022 Eskilstuna á morgun. Hafdís Renötudóttir meiddist á ökkla á æfingu í morgun og verður Saga Sif því til taks ef Hafdís verður ekki búin að jafna sig fyrir leikinn á morgun.
Saga Sif kemur til Eskilstuna um hádegið á morgun. Fer frá Íslandi með Icelandair til Stokkhólms eldsnemma í fyrramálið.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir er hinn markvörður íslenska landsliðsins sem kom til Svíþjóðar í gær.
- Auglýsing -