Þriðja umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með einum leik. FH-inga koma þá í heimsókn í Kórinn í Kópavogi og sækja nýliða HK heim. Flautað verður til klukkan 19.30.
Viðureignin í kvöld verður annar leikur nýliða HK í deildinni en sú fjórða hjá FH-ingum sem léku síðast á sunnudaginn gegn ÍBV í Vestmanneyjum.
HK tapaði eina leiknum sínum til þess, gegn KA á heimavelli 16. september.
FH-ingar hafa unnið einn leik, gegn Gróttu 23. september, en tapað tveimur, á móti Selfossi og ÍBV á útivelli. Viðureignin í kvöld verður þriðji leikur FH á útivelli í Olísdeildinni.
Til viðbótar verður landsleikur í handknattleik kvenna í Eskilstuna í kvöld þegar landslið Íslands og Svíþjóðar hefja keppni í sjötta riðli undankeppni Evrópumóts kvenna. Leikurinn hefst klukkan 17 og verður sýnd á RÚV. Einnig verður textalýsing á handbolti.is, beint úr keppnishöllinni í Eskilstuna.
Leikir dagsins
Olísdeild karla:
Kórinn: HK – FH, kl. 19.30.
Staðan í Olísdeild karla og næstu leikir, sjá hér.
A-landslið kvenna:
Eskilstuna: Svíþjóð – Ísland, kl. 17 – undankeppni EM.