Keppni hófst á nýjan leik í Olísdeild kvenna síðasta laugardag. Handboltahöllin, vikulegur þáttur um handbolta, hóf þar með göngu sína aftur eftir jólaleyfi. Í gærkvöld var rækilega farið yfir viðureignir 12. umferðar Olísdeildar kvenna. Þar á meðal leikur Reykjavíkurliðanna Fram og Vals sem síðarnefnda liðið vann örugglega, 30:19.
Rakel Dögg Bragadóttir, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar í þætti gærkvöldsins, hreifst mjög af varnarleik Valsliðsins gegn Fram. „Ég var hrifin af mörgu hjá Valsliðinu í leiknum, en ekki síst varnarleiknum. Þær [leikmenn Vals] voru frábærar og Framarar höfðu fá svör,“ sagði Rakel Dögg og bætti við að vörn Vals hafi pressað leikmenn Fram mjög stíft og neytt þær til þess að byrja sóknirnar hvað eftir annað upp á nýtt.
Sautján tapaðir boltar gegn þremur
„Framarar voru í miklu basli við að skora. Auk þess gerði Framliðið mörg tæknileg mistök, köstuðu boltanum oft frá sér og voru með 17 tapaða bolta í leiknum á móti þremur hjá Val. Það eitt og sér segir sig sjálft að það er erfitt að vinna Val með þessari tölfræði. Auk þess er Valsliðið mjög öflugt í að refsa og það gerði það ítrekað að keyra upp völlinn. Hvar var Framliðið?“ spurði Rakel Dögg, ekki síst vegna þess að það hefur aðalsmerki Fram að hlaupa vel fram og til baka.
Nánar er fjallað um leikinn í myndskeiði hér fyrir ofan.




