„Ég er bara fáránlega spenntur fyrir að byrja loksins mótið,“ segir Óðinn Þór Ríkharðsson vinstri hornamaður landsliðsins þegar handbolti.is hitti hann að máli á hóteli landsliðsins í aðdraganda fyrsta leiks íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í handknattleik í Kristianstad í Svíþjóð.
„Við erum fullir tilhlökkunar til að mæta ítalska landsliðinu sem er spennandi mótherji. Ítalska landsliðið hefur verið á mikilli uppleið síðustu ár og leikur skemmtilegan handbolta,“ segir Óðinn Þór.
„Þeir eru mjög frjóir í sínum leik. Það er bara gaman að mæta slíkum andstæðingi þar sem búast má við öllu.
Fyrir okkur skiptir máli að byrja vel og ná í sigur,“ segir Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik.
Leikur Íslands og Ítalíu hefst klukkan 17 á morgun.




