- Auglýsing -
Pólverjinn Wiktor Jankowski verður fjarri góðu gamni þegar pólska landsliðið mætir íslenska landsliðinu í annarri umferð riðlakeppni Evrópumóts karla í handknattleik í Kristianstad Arena á morgun klukkan 17. Jankowski fékk beint rautt spjald fyrir grófa óíþróttamannslega framkomu á 34. mínútu í viðureign Pólverja og Ungverja í gærkvöld.
Jankowski verður ekki aðeins að bíta í það súra epli að verða af viðureign Íslands og Póllands heldur skal hann einnig sitja í skammarkróknum þegar Pólverjar mæta Ítölum í þriðju og síðustu umferð riðlakeppninnar á þriðjudaginn.
Aganefnd Evrópumóts karla lítur brot Pólverjans alvarlegum augum.
- Auglýsing -



