Sólarhringur er síðan íslenska landsliðið lagði ítalska landsliðið örugglega í fyrstu umferð Evrópumótsins í handknattleik karla, 39:26, í Kristianstad Arena í hreint magnaðri stemningu. Þegar þetta er ritað er tæpur sólarhringur í næstu orrustu í keppninni, gegn Pólverjum. Íslenskur sigur í þeirri viðureign tryggir sæti í millriðlakeppninni áður en að síðustu viðureigninni kemur á þriðjudagskvöld klukkan 19.30 við Ungverja.
Meðan næsta leiks er beðið er ekki úr vegi að skoða nokkrar myndir frá leiknum við Ítalíu, þeim stærsta hjá íslensku landsliði í lokakeppni EM.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var með vökul augu sín á leiknum í gær. Hér fyrir neðan eru nokkrar valdar myndir.
(smellið á myndirnar til að sjá þær stærri).
Myndasyrpa: Lífið er yndislegt
Myndasyrpa: Gleðin við völd í stórsigri Íslands
Myndasyrpa: 3.000 Íslendingar skemmta sér í Kristianstad
Myndasyrpa: Síðasta æfing fyrir fyrsta leikinn á EM
Myndasyrpa: Viggó var tæklaður í upphitunarboltanum











































