- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Spennandi kvöld – þetta eru möguleikar Alfreðs á sæti í milliriðli

- Auglýsing -

Framundan er mjög spennandi kvöld hjá leikmönnum og stuðningsmönnum liðanna sem eru í A-riðli Evrópumótsins í handknattleik. Fyrir síðustu leikina tvo er sú staða uppi að þau eiga liðin fjögur öll möguleiki á að komast í milliriðil. Lið þjóðanna fjögurra eru Austurríki, Serbía, Spánn og Þýskaland sem Alfreð Gíslason þjálfar.

Leikir kvöldsins:
17.00: Austurríki – Serbía.
19.30: Þýskaland – Spánn.


Þetta eru möguleikarnir hjá þýska landsliðinu og Alfreð:

  • sigur vinnsta á Spáni með þriggja marka mun eða meira.
  • sigur á Spáni og Serbía tapar eða gerir jafntefli við Austurríki.
  • jafntefli við Spán og Serbía tapar.
  • tap fyrir Spáni og Austurríki vinnur Serbía með þriggja marka mun og skorar 29 mörk eða færri.
  • tap fyrir Spáni með eins marks mun og Austurríki vinnur Serba, 30:27.
  • tap fyrir Spáni með tveggja marka mun og Austurríki vinnur Serbíu 30:27. Þá verður þýska liðið að skora 28 mörk eða fleiri.

EM karla 2026 – úrslit, staðan og leiktímar

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -