- Auglýsing -
Landsliðsmaðurinn Teitur Örn Einarsson er orðaður við þýsku handknattleiksliðin HSG Wetzlar og Frisch Auf Göppingen eftir því sem fram kemur á Instagram-síðu RThandball, sem oft hefur hitt naglann á höfuðið.
Teitur Örn er á síðara ári sínu hjá Vfl Gummersbach. Enn sem komið er hefur ekki spurst út um hvort honum standi til boða nýr samningur hjá félaginu.
Skömmu áður en Evrópumótið í handknattleik hófst var því gert skóna í færslu á samfélagsmiðlinum X að Wetzlar vildi tryggja sér krafta Teits Arnar, og það fyrr en síðar. Nú ítrekar RThandball þennan áhuga og gott betur.
- Auglýsing -



