Einar Þorsteinn Ólafsson verður í leikmannahópnum í kvöld gegn Ungverjum í úrslitaleik F-riðils EM í handknattleik karla í Kristianstad. Andri Már Rúnarsson verður utan liðsins í staðinn. Einar Þorsteinn var veikur og kom þar af leiðandi ekki til greina í viðureignunum við Ítali og Pólverja.
Leikur Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 19.30.
Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti fyrir stundu leikmannahóp kvöldsins. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum.
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (289/26).
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (77/2).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (109/117).
Bjarki Már Elísson, Veszprém (130/431).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (27/7).
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (66/143).
Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (95/217).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (77/180).
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (49/70).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (102/186)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (34/116).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (60/181).
Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg (96/352)
Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (50/47).
Viggó Kristjánsson, Erlangen (75/224).
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (110/48).




