Þriðju umferð Olísdeildar karla í handknattleik lýkur í kvöld með tveimur viðureignum, annars vegar á Seltjarnarnesi og hinsvegar í Hafnarfirði.
Framarar hafa kastað mæðinni eftir þátttöku í Coca Cola-bikarhelginni á dögunum. Þeir sækja Gróttumenn heim í Hertzhöllina kl. 18. Grótta er án stiga eftr tvo fyrstu leiki sína, gegn Val á heimavelli og við FH á útivelli. Hálf þriðja vika er liðin frá síðasta leik Gróttuliðsins.
Fram er með tvö stig eftir tvær viðureignir, sigur á Selfoss og en tap fyrir Haukum í fyrstu umferð.
Grannaslagur verður í Schenkerhöllinni þegar Haukar fá Stjörnuna í heimsókn. Stjarnan hefur aðeins leikið einn leik í Olísdeildinni, gegn Aftureldingu föstudaginn 17. september. Garðbæingar fóru með bæði stigin heim í farteskinu eftir mikla skemmtun, 36:35.
Haukar hafa unnið tvær viðureignir og gert eitt jafntefli. Viðureign liðsins við Selfoss á dögnum var flýtt vegna þátttöku beggja liða í Evrópukeppninni um og eftir næstu helgi. Þar af leiðandi eru Haukar að leika sinn fjórða leik í kvöld. Með sigri tekst þeim að endurheimta efsta sæti deildarinnar sem ÍBV situr í eftir sigur á KA í gær.
Olísdeild karla:
Hertzhöllin: Grótta – Fram, kl. 18 – sýndur á Stöð2sport.
Ásvellir: Haukar – Stjarnan, kl. 19.40 – sýndur á Stöð2sport.
Stöðuna og næstu leiki í Olísdeild karla er hægt að sjá hér.