Eftir magnaða frammistöðu þá kvöddu á þriðja þúsund Íslendingar keppnishöllina í Kristianstad í gærkvöld þegar íslenska landsliðið hafði unnið ungverska landsliðið í þriðju umferð riðlakeppninnar, 24:23. Íslensku stuðningsmennirnir settu stórkostlegan svip á allar þrjár viðureignir landsliðsins. Leikmenn landsliðsins og starfsfólk kunni svo sannarlega að meta stuðninginn sem var áþreifanlegur.
Í lokin sungu allir saman „Lífið er yndislegt“ en hámarkinu var að margra mati náð með sjálfssprottnum söng stuðningsmanna á „Ég er kominn heim“ áður gengið var út hrollkalt janúarkvöld í Kristianstad.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari hafði að vanda auga á stuðningsmönnum landsliðsins í lokadansi þeirra í gærkvöld. Hluti þeirra mynda sem hann tók birtist hér fyrir neðan.
-Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.



Fleiri myndasyrpur:
Myndasyrpa: Líf og fjör í Kristianstad Arena
Myndasyrpa: Lífið er yndislegt
Myndasyrpa: Nokkur valin augnablik úr Ítalíuleiknum
Myndasyrpa: Ísland lék á als oddi gegn Póllandi
Myndasyrpa: Bjartsýni og stemning í Kristianstad
Myndasyrpa: Gleðin við völd í stórsigri Íslands
Myndasyrpa: Valkyrjur á vellinum
Myndasyrpa: Elliði Snær faðmaði formann HSÍ
Myndasyrpa: 3.000 Íslendingar skemmta sér í Kristianstad
Myndasyrpa: Létt andrúmsloft á æfingu
Myndasyrpa: Síðasta æfing fyrir fyrsta leikinn á EM
Myndasyrpa: Viggó var tæklaður í upphitunarboltanum
















































