- Auglýsing -
Sérsveitin, stuðningsmenn íslenska landsliðsins í handknattleik, stendur fyrir upphitunarpartý fyrir stuðningsmenn landsliðsins í dag á Quality Hótel View, rétt undir 100 metrum frá Malmö Arena. Fjörið hefst klukkan 11.30 að sænskum tíma, pubquiz frá 12.30 og andlitsmálun til klukkan 14.
Alvöru pepp og stemning, segir í tilkynningu Sérsveitarinnar.
Hægt verður að kaupa mat á staðnum; hamborgara, pylsur og snakk.
Á þriðja þúsund miðar seldir til Íslendinga á tvo fyrstu leikina
Leikur Íslands og Króatíu í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumóts karla hefst klukkan 15.30 að sænskum tíma, 14.30 á Íslandi.
Fjölmennum á Quality Hótel View og búum til stemningu og samstöðu!
- Auglýsing -


