- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hefur ekki áhrif á þátttöku mína í mótinu

- Auglýsing -

„Höggið sem ég fékk á öxlina mun ekki hafa nein áhrif á þátttöku mína í mótinu,“ sagði Orri Freyr Þorkelsson vinstri hornamaður íslenska landsliðsins við handbolta.is í dag er hann var spurður hvort þung bylta sem hann varð fyrir í vörn seint í leiknum við Króata í gær hefði áhrif á þátttöku hans í mótinu.


Orri Freyr var hlaupinn niður þar sem hann stóð í vörn seint í síðari hálfleik. Höggið við fallið kom á vinstri öxlina. Eftir að hafa fengið aðhlynningu inni á leikvelli hjá Jóni Birgi Guðmundssyni sjúkraþjálfara fór Orri Freyr af leikvelli.

Ýmir Örn Gíslason hugar að Orra Frey áður en Jón Birgir sjúkraþjálfari kom til að huga að Orra Frey. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Margir gripu andann á lofti þegar Orri Freyr lá í gólfinu þjakaður en fyrr í leiknum fékk Haukur Þrastarson mikið högg á kinnbein þegar hann varðist. Elvar Örn Jónsson meiddist í leiknum við Ungverja á þriðjudaginn og verður ekkert meira með á mótinu.

Orri Freyr verður óhikað með í leiknum við Svía í Malmö Arena annað kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 17.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -