- Auglýsing -
Danski landsliðsmaðurinn Emil Bergholt varð faðir í gærkvöld, fáeinum klukkustundum eftir að hann hafði leikið með landsliðinu í sigurleik á Spánverjum í milliriðlakeppni EM.
Danskir fjölmiðlar sögðu frá því eftir viðureignina að Bergholt hefði hlaupið í miklum spretti út af leikvellinum til búningsklefa danska landsliðsins í Jyske Bank Boxen í Herning, staldrað stutt við og tekið á rás út úr keppnishöllinni og í bíl áleiðis til eiginkonu sinnar, Astrid, sem var á leiðinni á fæðingardeild.
Í morgun greina danskir fjölmiðlar frá þeim gleðitíðindum að Bergholt-hjónum hafi fæðst drengur í nótt. Hann er annað barn þeirra.
Óvíst er hvort Bergholt verður með danska landsliðinu í næstu leikjum á EM.
- Auglýsing -



