„Fram undan er næsti úrslitaleikur hjá okkur. Við erum komnir í þá forréttindastöðu að komast í úrslitaleik og erum mjög peppaðir og spenntir fyrir leiknum við Sviss,“ sagði Elliði Snær Viðarsson landsliðsmaður í handknattleik fyrir viðureign dagsins við Sviss á Evrópumótinu í handknattleik karla.
Flautað verður til leiks klukkan 14.30.
Mix af öllu sem við höfum mætt
„Lið Sviss er um margt frábrugðið sænska landsliðinu. Svíar hafa sitt ákveðna leikplan og treysta á það. Svissararnir eru með fjölbreyttari útfærslur og fleiri afbrigði af sóknarleik. Þeir eru mikið maður á mann eins og Ítalir. Þeir leika mix af öllu því sem við höfum verið að díla við á mótinu. Þess vegna verðum við að vera þéttir í vörninni, hér eftir sem hingað til,“ sagði Elliði Snær og bætti við.
„Við erum allir sammála um að nýta tækifærið sem við erum komnir í á mótinu. Þess vegna er það eina í stöðunni hjá okkur að vinna næsta leik,“ sagði Elliði Snær Viðarsson landsliðsmaður í handknattleik við handbolta.is í gær.
Viðureign Íslands og Sviss hefst klukkan 14.30 í Malmö Arena.

