- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grautargangur í reglum um töskur og fylgihluti á EM

- Auglýsing -

Þótt reglur eigi að vera samræmdar á milli keppnishalla á Evrópumótinu í handknattleik er langt í frá að svo sé þegar á hólminn er komið. Í Jyske Bank Boxen í Herning eru reglur mun strangari en í öðrum keppnishöllum, svo mjög að þær hafa komið þeim fáu Íslendingum sem voru á meðal áhorfenda á leik Íslands og Danmerkur í opna skjöldu. Rétt er að hafa reglur en slæmt er þegar þær eru á reiki og alls ekki í samræmi við það sem tilkynnt hefur verið.

Með aðgöngumiðum fylgja upplýsingar um eitt og annað sem er bannað að koma með á kappleiki. Þar á meðal mega s.s. bakpokar, ekki vera stærri en 40x40x20 sentimetrar (sjá mynd hér fyrir neðan).

Upplýsingar um hvað má koma með og hvað ekki á kappleiki á EM karla í handknattleik. Þessar upplýsingar eru að hluta til mun strangari í Herning, öllum að óvörum.

Trékassi?

Sérsveitarfólkinu var bannað að fara inn í höllina með stærri hluti, þar á meðal töskur, en það sem komst fyrir í trékassa sem einn félaginn heldur á á myndinni hér fyrir neðan. Þurfti m.a. að taka kúabjöllur í sundur til þess að koma þeim í gegnum eftirlitið við dyrnar.

Sérsveitin með trékassann sem miðað er við þegar kemur að því ákveða hvaða bakpokar eru of stórir til að mega að fara inn í Jyske Bank Boxen. Svo virðist sem kassinn rúmi vart meira en pennaveski.

Bara trommubann í Boxen

Auk þess eru fimm trommur á hvert keppnislið leyfðar samkvæmt reglum. Í Jyske Bank Boxen eru trommur bannaðar, nokkuð sem kom sérsveitinni, stuðningsmannasveit landsliðsins, á óvart eftir veru sína í Malmö og Kristianstad.

Þröngar reglur um bakpoka

Einnig eru enn þrengri reglur um stærð bakpoka en gert er ráð fyrir. Urðu einhverjir úr hópi Íslendinga á leiknum í gærkvöld að fara langa leið með töskur sínar í geymslu gegn gjaldi eða komu þeim fyrir í bifreiðum sínum utan við höllina. Sömu töskur var leyft að koma með í Kristianstad og Malmö enda innan þeirra marka sem mótshaldarar gefa upp.

Þetta ósamræmi frá tilkynningum mótshalda til raunveruleikans er enn eitt dæmið um grautargang í skipulagi Evrópumótsins í handknattleik sem nokkrum sinnum hefur verið sagt frá síðustu daga.

Sérsveitin með norskan „krók“ á móti banni (bragði)

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -