- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fjögurra marka sigur og áfram í toppbaráttu

- Auglýsing -

Landsliðskonurnar þrjár hjá Blomberg-Lippe fönguðu góðum sigri á heimavelli í kvöld í 16. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið lagði BSV Sachsen Zwickau, 32:28, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13. Blomberg-Lippe er áfram efst í deildinni ásamt Borussia Dortmund með 24 stig. Dortmund á leik til góða.


Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Blomberg-Lippe, gaf 2 stoðsendingar, vann 3 vítaköst og vann andstæðinga af leikvelli í tvígang.

Díana Dögg Magnúsdóttir átti 5 stoðsendingar, var með 2 sköpuð færi, 1 stolinn bolta, vann einu sinni ruðning en mátti bíta í það súra epli að vera vikið einu sinni af leikvelli.

Andrea Jacobsen átti eina stoðsendingu, vann 1 vítakast og varði eitt skot í vörninni.

Úrslit leikja í dag:

HSG Blomberg-Lippe – BSV Sachsen Zwickau 32:28.
Sport-Union Neckarsulm – Thüringer HC 23:33.
VfL Oldenburg – SV Union Halle-Neustadt 34:29.
FRISCH AUF Göppingen – Buxtehuder SV 32:32.
Borussia Dortmund – HSG Bensheim/Auerbach 31:23.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -