- Auglýsing -
- Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Volda lagði Stavanger naumlega, 24:23, á heimavelli í næstefstu deild norska handknattleiksins. Landsliðskonan skoraði m.a. sigurmark leiksins 50 sekúndum fyrir leikslok.
- Volda situr í 5. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 16 leiki. Fint Tønseberg er efst sem fyrr með 30 stig.
- Katla María Magnúsdóttir skoraði eitt mark í stórsigri Holstebro á Gudme HK, 32:22, á útivelli í dönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Holstebro hefur áfram yfirburðastöðu í deildinni, 28 stig eftir 15 leiki, átta stigum á undan næsta liði.
- Sjö umferðir eru eftir af deildinni og með sama áframhaldi líður ekki á löngu áður en Katla og félagar tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
- Tvö mörk frá Jóni Ísaki Halldórssyni nægðu Lemvig skammt á heimavelli í gær gegn Kolding. Lærisveinar Anders Eggert unnu með fimm marka mun, 37:32. Lemvig er í sjöunda sæti næstefstu deildarinnar í Danmörku.
- Birta Rún Grétarsdóttir var ekki á meðal þeirra sem skoruðu fyrir Fjellhammer í sex marka tapi liðsins fyrir Sola á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í gær, 34:28. Birtu Rún var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur. Camilla Herrem var markahæst hjá Sola með sjö mörk.
- Fjellhammer í 11. sæti af 14 liðum með átta stig eftir 15 leiki. Sola er efst með 28 stig, tveimur stigum á undan meisturum síðasta árs, Storhamar.
- Auglýsing -


