- Auglýsing -
Egyptar urðu í gær Afríkumeistarar í handknattleik karla í fjórða sinn í röð er þeir lögðu Túnisbúa, 37:24, í úrslitaleik keppninnar sem fram fór í Rúanda. Þetta er í fjórða sinn í röð sem Egyptaland verður Afríkumeistari og í tíunda skipti alls.
Egyptar hafa þar með jafnað metin við Túnismenn sem einnig hafa unnið í tíu skipti. Egyptar hafa ekki enn jafnað met Alsírs frá níunda áratug síðustu aldar þegar lið þjóðarinnar var fimm sinnum í röð.
Grænhöfðeyingar hrepptu bronsverðlaunin með sigri á Alsír, 29:23. Hafsteinn Óli Ramos Rocha lék ekki með Grænhöfðaeyjum á mótinu.
Egyptaland, Túnis, Grænhöfðaeyjar og Alsír verða fulltrúar Afríku á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í Þýskalandi eftir ár.
- Auglýsing -


