- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Barros rekinn frá Herði

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Harðar á Ísafirði hefur rekið portúgalska handknattleiksmanninn Sergio Barros. Þetta var gert í kjölfar leiks liðsins gegn Val 2 á Ísafirði í gær sem Hörður tapaði með einu marki, 29:28. Ekki kemur fram í tilkynningu Harðar hvað gekk á, aðeins sagt að Barros hafi með hegðun sinni brotið gegn gildum félagsins. Einnig segir í tilkynningu Harðar að félagið hafi ekki í hyggju að tjá sig frekar um málið.


Barros kom til Harðar í upphafi keppnistímabilsins. Hann skoraði fjögur mörk í leiknum í gær og var í tvígang vikið af leikvelli í tvær mínútur.

Barros skoraði 76 mörk í 15 leikjum með Herði og er þriðji markahæsti leikmaður liðsins sem situr í 5. sæti Grill 66-deildarinnar með 17 stig.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -