- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grill 66 karla: Magnús Ingi skoraði sigurmarkið

- Auglýsing -

Valsarar gerðu góða ferð vestur á Ísafjörð í gær og komu suður með tvö stig í farsteskinu eftir að hafa lagt Hörð, 29:28, í íþróttahúsinu á Torfnesi. Matthías Ingi Magnússon skoraði tvö síðustu mörk leiksins og tryggði Val stigin tvö ásamt því sem markvörðurinn árvökuli, Jóhann Ágústsson, var vel með á nótunum og kom í veg fyrir að Harðarmenn næðu að svara fyrir sig.


Hörður var lengst af með yfirhöndina í leiknum en tapaði niður þræðinum í lokin. Sérgio Barros, þáverandi leikmanni Harðar, var vikið af leikvelli þegar tvær mínútur og 45 sekúndur voru eftir af leiktímanum. Heimamenn voru marki yfir, 28:27. Valsarar nýttu liðsmuninn til þess að snúa við taflinu og vinna.

Haukar 2 lögðu HBH í Eyjum í gær, örugglega, 33:25.

Hörður – Valur 2 28:29 (16:14).

Mörk Harðar: Endijs Kusners 11, Sérgio Barros 4, Kei Anegayama 3, Shuto Takenaka 3, Petr Hlavenka 2, Guilherme Carmignoli De Andrade 2, Jhonatan C. R. Dos Santos 2, Yuji Moriya 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 21, Hermann Alexander Hákonarson 1.
Mörk Vals 2: Matthías Ingi Magnússon 11, Logi Finnsson 7, Sigurður Atli Ragnarsson 7, Kári Steinn Guðmundsson 2, Ísak Buur Þormarsson 1, Dagur Ármannsson 1.
Varin skot: Jóhann Ágústsson 17.

HBH – Haukar 2 25:33 (14:16).

Mörk HBH: Hinrik Hugi Heiðarsson 7, Ívar Bessi Viðarsson 6, Andri Magnússon 3, Egill Oddgeir Stefánsson 3, Bogi Guðjónsson 2, Tómas Runi Gunnarsson 1, Heimir Halldór Sigurjónsson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Kári Snær Hlynsson 1.
Varin skot: Helgi Þór Adolfsson 4, Gabríel Ari Davíðsson 3.

Mörk Hauka 2: Jón Karl Einarsson 9, Daníel Máni Sigurgeirsson 8, Daníel Wale Adeleye 8, Sigurður Bjarmi Árnason 4, Egill Jónsson 1, Bóas Karlsson 1, Helgi Marinó Kristófersson 1, Ari Dignus Maríuson 1.
Varin skot: Ari Dignus Maríuson 15, Birnir Hergilsson 1.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -