- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grill 66 kvenna: HK er efst á nýjan leik

- Auglýsing -

HK endurheimti efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í gær eftir öruggan sigur á Fram 2, 35:26, í síðasta leik 15. umferðar deildarinnar. Leikið var í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Grótta hafði jafnað metin við HK á föstudagskvöld með öruggum sigri á Aftureldingu en eftir sigur í gær er HK eitt efst með 28 stig þegar sex umferðum er ólokið í Grill 66-deild kvenna.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Fram 2 – HK 26:35 (11:20).

Mörk Fram 2: Sara Rún Gísladóttir 10, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 6, Birna Ósk Styrmisdóttir 3, Sylvía Dröfn Stefánsdóttir 3, Margrét Á. Bjarnhéðinsdóttir 2, Brynja Sif Gísladóttir 1, Natalía Jóna Jensdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 11.

Mörk HK: Þórhildur Braga Þórðardóttir 6, Leandra Náttsól Salvamoser 6, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 5, Amelía Laufey G. Miljevic 4, Auður Katrín Jónasdóttir 4, Inga Fanney Hauksdóttir 3, Katrín Hekla Magnúsdóttir 2, Ester Amíra Ægisdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Rakel Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 12, Tanja Glóey Þrastardóttir 7.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -