Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur verið valinn í úrvalslið Evrópumóts karla í handknattleik en skipan liðsins var tilkynnt fyrir stundu, nokkru áður en úrslitaleikir mótsins hefjast í Jyske Bank Boxen í Herning á Jótlandi. Íslenskur landsliðsmaður var síðasta í úrvalsliði EM karla fyrir fjórum árum þegar Viktor Gísli Hallgrímsson var markvörður mótsins.
Daninn Mathias Gidsel var valinn besti eða mikilvægasti leikmaður Evrópumótsins. Allt stefnir í að Gidsel verði markakóngur mótsins. Gidsel hefur á síðustu árum staðið upp úr á hverju mótinu á eftir öðru og verið valinn bestur eða mikilvægasti á Ólympíuleikunum 2021 og 2024 og HM 2023 og 2025.
Úrvalslið EM 2026:
Vinsta horn: August Pedersen, Noregi.
Vinstri skytta: Simon Pytlick, Danmörku.
Miðjumaður: Gísli Kristjánsson, Íslandi.
Hægri skytta: Francisco Costa, Portúgal.
Hægra horn: Mario Sostarić, Króatíu.
Línumaður: Johannes Golla, Þýskalandi.
Markvörður: Andreas Wolff, Þýskalandi.
Varnarmaður: Salvador Salvador, Portúgal.
Besti ungi leikmaðurinn: Francisco Costa, Portúgal.
Mikivægasti leikmaðurinn: Mathias Gidsel, Danmörku.


