- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sigvaldi Björn er að hita upp í Boxen

- Auglýsing -

Sigvaldi Björn Guðjónsson er mættur í keppnissalinn í Jyske Bank Boxen fyrir bronsleikinn við Króata á Evrópumóti karla í handknattleik. Hann er í upphitunargallanum og virðist klár í slaginn. Þar með má nánast slá föstu að hann leiki með íslenska landsliðinu í leiknum mikilvæga.


Sigvaldi Björn var kallaður til Herning á fimmtudagskvöld og skráður í leikmannahóp íslenska landsliðsins snemma í morgun.

Sigvaldi Björn hefur leikið 85 landsleiki og skorað 230 mörk.

Þegar þetta er tilkynnt hefur keppnishópur Íslands ekki verið opinberlega tilkynntur.

Ljóst að koma Sigvalda Björns í leikmannahópinn er kostnað Teits Arnar Einarsson sem er í áhorfendastúkunni með kaffibolla.

Sigvaldi Björn Guðjónsson er mættur í EM-slaginn. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -