„Ég ber svo mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu að ég mun ekki hætta að gefa kost á mér í landsliðið svo lengi sem ég spila handbolta,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handknattleik spurður að leikslokum á Evrópumótinu í handknattleik með hvaða augum hann horfir til framtíðar með landsliðinu.
Björgvin Páll lék í dag sinn 296. landsleik þegar landsliðið tapaði fyrir Króötum í úrslitaleik um bronsverðlaun á Evrópumótinu í handknattleik í Danmörku, 34:33. Um leið var þetta 54. EM-leikur Björgvins Páls. Nýhafið ár markar einnig 24. tímabilið með landsliðinu og á hann lengri feril með landsliðinu en nokkur annar Íslendingur.
Björgvin Páll lék með í nærri hálftíma í leiknum í dag og lífgaði innkoma hans upp á leik Íslands sem hafði átt undir högg að sækja og var m.a. sex mörkum undir, 12:6.
Hefði viljað ná fleiri boltum
„Það er mitt verkefni að koma inn á og freista þess að koma hreyfingu á hlutina. Ég hefði viljað ná tveimur til þremur skotum í síðari hálfleik en því miður tókst það ekki. Þegar upp er staðið munar einu marki. Viktor kom aftur inn undir lokin og var flottur, varði meðal annars tvö vítaköst,“ segir Björgvin Páll sem var í bronsliðinu á EM 2010, þá samherji núverandi þjálfara, Snorra Steins Guðjónssonar og Arnórs Atlasonar.
Kostaði mikla orku
„Byrjunin var erfið. Í spennuleik þar sem verðlaun er í boði og allir á síðustu dropunum er vont að lenda strax undir gegn Króötum. Það kostaði okkur alltof mikla orku að vera undir frá upphafi. Þótt lítið væri eftir á orkutankinum hjá mönnum þá náðu þeir að kreista fram orku á allra síðustu mínútunum þannig að litlu mátti muna að við jöfnuðum. Leikurinn hefði sennilega þurft að standa yfir í 63 mínútur til að okkur tækist að jafna,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörðurinn reyndi í viðtali við handbolta.is í Jyske Bank Boxen í dag.








