- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Svíar koma í mars – fyrstu landsleikirnir síðan 2018

- Auglýsing -

Karlalandsliðið í handknattleik mætir sænska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum hér á landi í síðari hluta mars. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum og einnig að samkomulag um komu sænska landsliðsins hafi legið fyrir áður en nýafstaðið Evrópumót hófst. Bæði íslenska og sænska landsliðið hafa tryggt sér þátttökurétt á HM á næsta ári.


Leikirnir við Svía verða fyrstu vináttulandsleikir karlalandsliðsins á heimavelli síðan undir árslok 2018 er landslið Barein, þá undir stjórn Arons Kristjánssonar, lék tvisvar hér á landi í undirbúningi beggja landsliða fyrir HM 2019.

Eins og mörgum er eflaust í fersku minni vann íslenska landsliðið það sænska með átta marka mun, 35:27, í milliriðlakeppni EM 25. janúar.

Svíar höfnuðu í sjötta sæti á EM eftir tap fyrir Portúgal, 36:35, í viðureign um fimmta sætið síðasta föstudag. Fjórða sætið kom í hlut íslenska landsliðsins á Evrópumótinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -