Ómar Ingi varð markakóngur íslenska landsliðsins á EM 2026 með 55 mörk í níu leikjum. Hann er fimmti markahæsti leikmaður Íslands á Evrópumótum frá upphafi með 136 mörk og er sjö mörkum á eftir landsliðsþjálfaranum, Snorra Steini Guðjónssyni, sem skoraði 143 mörk í lokakeppni EM frá 2004 til 2016. EM 2026 var fjórða Evrópumótið sem hann tekur þátt í.
Þetta er í annað sinn sem Ómar Ingi skorar flest mörk Íslands á EM en síðast fyrir fjórum árum var hann aðsópsmestur við markaskorun. Þá varð Selfyssingurinn markahæstur allra á mótinu með 58 mörk.
Markakóngar Íslands á EM frá 2000 til 2024:
| Ár: | leikmaður: | mörk: | leikir: |
| 2026 | Ómar Ingi Magnússon | 55 | 9 |
| 2024 | Viggó Kristjánsson | 34 | 7 |
| 2022 | Ómar Ingi Magnússon | 58 | 8 |
| 2020 | Alexander Petersson | 23 | 7 |
| Aron Pálmarsson | 23 | 7 | |
| Bjarki Már Elísson | 23 | 7 | |
| 2018 | Guðjón Valur Sigurðsson | 14 | 3 |
| Ólafur A. Guðmundsson | 14 | 3 | |
| 2016 | Guðjón Valur Sigurðsson | 17 | 3 |
| 2014 | Guðjón Valur Sigurðsson | 44 | 7 |
| 2012 | Guðjón Valur Sigurðsson | 41 | 6 |
| 2010 | Arnór Atlason | 39 | 8 |
| 2008 | Guðjón Valur Sigurðsson | 34 | 6 |
| 2006 | Snorri Steinn Guðjónsson | 42 | 6 |
| 2004 | Ólafur Stefánsson | 21 | 3 |
| 2002 | Ólafur Stefánsson | 58 | 8 |
| 2000 | Valdimar Grímsson | 41 | 6 |

Eftirtaldir skoruðu mörk Íslands á EM 2026 að Ómari Inga undanskildum:
Orri Freyr Þorkelsson, 36.
Óðinn Þór Ríkharðasson 35.
Gísli Þorgeir Kristjánsson, 34.
Elliði Snær Viðarsson, 32.
Janus Daði Smárason, 29.
Viggó Kristjánsson, 29.
Bjarki Már Elísson, 19.
Haukur Þrastarson, 12.
Arnar Freyr Arnarsson, 6.
Elvar Örn Jónsson, 3.
Teitur Örn Einarsson, 2.
Andri Már Rúnarsson, 1.
Einar Þorsteinn Ólafsson, 1.

Markahæstu leikmenn Íslands á EM frá upphafi, 50 mörk eða fleiri:
Guðjón Valur Sigurðsson, 288.
Ólafur Stefánsson, 184.
Aron Pálmarsson, 150.
Snorri Steinn Guðjónsson, 143.
Ómar Ingi Magnússon, 136.
Alexander Petersson, 111.
Róbert Gunnarsson, 106.
Bjarki Már Elísson, 91.
Arnór Atlason, 89.
Viggó Kristjánsson, 83.
Janus Daði Smárason, 76.
Sigvaldi Björn Guðjónsson, 67.
Ásgeir Örn Hallgrímsson, 63.
Elliði Snær Viðarsson, 62.
Patrekur Jóhannesson, 57.
Gísli Þorgeir Kristjánsson, 54.



