Alls hafa 86 handknattleiksmenn leikið fyrir íslenska karlalandsliðið í 87 leikjum á 14 Evrópumótum sem Ísland hefur haft rétt til þess að taka þátt í frá árinu 2000. Tveir leikmenn bættust í hóp EM-nýliða að þessu sinni; Andri Már Rúnarsson og Þorsteinn Leó Gunnarsson. EM-nýliðarnir voru einnig tveir á EM 2024, Einar Þorsteinn Ólafsson og Stiven Tobar Valencia.
Af 86 leikmönnum hafa 69 þeirra skoraði a.m.k. eitt mark. Tveir skoruðu sín fyrstu EM-mörk á nýliðnu móti: Andri Már og Einar Þorsteinn Ólafsson. Sá síðarnefndi var þátttakandi á öðru EM-móti sínu.
Tuttugu leikmenn voru í EM-hópi Íslands að þessu sinni, þar af komust 19 þeirra á leikskýrslu.

Flestir voru leikmenn íslenska hópsins, 26 á EM 2022 í Búdapest, þegar covid reið húsum, en af þeim tóku 24 a.m.k. þátt í einum leik. Þar af voru 10 með á EM í fyrsta sinn. Fæstum leikmönnum tefldi Ísland fram á EM 2002, fimmtán. Af þeim lék einn alla leikina átta frá upphafi til enda, Einar Örn Jónsson.
Hér fyrir neðan er listi yfir þá leikmenn sem leikið hafa fleiri en 16 landsleiki á EM fyrir Ísland, leikjafjöldi á EM (fjöldi EM er innan sviga):
Guðjón Valur Sigurðsson, 61 (11).
Björgvin Páll Gústavsson, 54 (9).
Aron Pálmarsson, 44 (8).
Ásgeir Örn Hallgrímsson, 39 (8).
Róbert Gunnarsson, 37 (7).
Vignir Svavarsson, 36 (6).
Alexander Petersson, 34 (6).
Ólafur A. Guðmundsson, 34(7).
Ólafur Stefánsson, 33 (6).
Snorri Steinn Guðjónsson, 33 (6).
Viktor Gísli Hallgrímsson, 31 (4).
Bjarki Már Elísson, 31 (5).
Viggó Kristjánsson, 31 (4).
Janus Daði Smárason, 30 (5).
Ýmir Örn Gíslason, 30 (5).
Arnór Atlason, 29 (6).
Arnar Freyr Arnarsson, 28 (5).
Ómar Ingi Magnússon, 26 (4).
Kári Kristján Kristjánsson, 24 (5).
Sverre A. Jakobsson, 24 (5).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, 23 (4).
Elliði Snær Viðarsson, 22 (3).
Elvar Örn Jónsson, 22 (4).
Sigfús Sigurðsson, 22 (4).
Haukur Þrastarson, 21 (3).
Hreiðar Levý Guðmundsson, 21 (4).



