Arnar Gunnarsson, fyrrverandi þjálfari Fjölnis og Selfoss, fer vel af stað með liði sínu, Neistin, í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik. Hann tók við þjálfun liðsins í sumar.
Neistin hefur unnið tvær fyrstu viðureignir sína. Á síðasta sunnudag vann Neisti liðsmenn StÍF frá Skála í Skálafirði örugglega, 37:26, í annarri umferð í leik sem fram fór í Höllinni á Hálsi við Þórshöfn, heimavelli Neistans.
Næsti leikur Arnars og lærisveina verður við Kyndil á sunnudaginn í Höllinni á Hálsi. Þar verður um sannkallaðan Þórshafnarslag að ræða.
Kringvarpið í Færeyjum fjallaði ítarlega um sigurleik Neistans á liðsmönnum StÍF og má sjá fréttina með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.
https://kvf.fo/netvarp/sv/2020/09/21/20092132neistinstifmenn
Hér er svo frétt um sigur Harðar Fannars Sigþórssonar og samherja í KÍF á liðsmönnum Kyndils um liðna helgi.