- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísland hefur aldrei skoraði fleiri mörk á EM – met frá 2006 féll

- Auglýsing -

Íslenska landsliðið hefur aldrei skorað eins mörg mörk að meðaltali í leik á Evrópumóti og það gerði á mótinu sem lauk í Danmörku á sunnudaginn, 32,9 mörk. Gamla metið var frá EM 2006 þegar skoruð voru 31,7 mörk að jafnaði í leik. Þetta er aðeins í fjórða sinn sem landsliðið skorar fleiri en 30 mörk að meðaltali í leik. Auk áranna 2006 og 2026 skoraði landsliðið 31,1 mark á EM 2010 og 30,7 mörk í leik 2016.


Alls skoraði íslenska landsliðið 296 mörk í níu leikjum á mótinu en leikirnir hafa aldrei verið fleiri. Til samanburðar voru leikirnir átta á EM 2010 þegar Ísland komst síðast í undanúrslit. Keppnislið voru þá 16 en hafa verið 24 frá og með 2020.

Orri Freyr Þorkelsson og Orri Freyr Þorkelsson kætast í einum leikjum Evrópumótsins. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Nærri meðaltali

Skoruð voru 263 mörk hjá íslenska landsliðinu á EM 2026, 29,2 að jafnaði í leik, 0,6 mörkum færri en á EM 2024. Þetta er rétt yfir meðaltali frá upphafi sem er 28,8 að jafnaði í leik. Landsliðið er því nærri meðaltali þegar litið er til síðustu 16 móta en sex sinnum hafa fleiri mörk að meðaltali verið skoruð hjá landsliðinu frá og með EM 2000. Flest mörk að jafnaði fékk íslenska landsliðið á sig á EM fyrir 10 árum, 33,7. Þar á eftir EM 2004 með 32 mörk.

Mörk skoruð af íslenska landsliðinu á EM karla:

Ár (fj.leikja)skoruð mörk:meðaltal:
2000 (6)14724,5
2002 (8)22127,6
2004 (3)8729,0
2006 (6)19031,7
2008 (6)15726,1
2010 (8)24931,1
2012 (6)17729,5
2014 (7)19928,4
2016 (3)9230,7
2018 (3)7424,7
2020 (7)19427,7
2022 (8)23028,7
2024 (7)20028,6
2026 (9)29632,9
Samtals:2513179,5 (28,9)


Mörk sem íslenska landsliðið hefur fengið á sig á EM karla:

Ár (fj.leikja)Fengin á:meðaltal:
2000 (6)16227,0
2002 (8)20926,1
2004 (3)9632,0
2006 (6)19131,8
2008 (6)17228,7
2010 (8)24030,0
2012 (6)17829,7
2014 (7)19928,4
2016 (3)10133,7
2018 (3)8227,3
2020 (7)19427,7
2022 (8)21226,5
2024 (7)20929,8
2026 (9)26329,2
Samtals:2508179,1 (28,8)


Sjá einnig:

Ómar Ingi er fimmti markahæstur frá upphafi – markakóngur í annað sinn

Tveir nýliðar – 86 hafa leikið fyrir Ísland á EM

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -