Jón Halldórsson segir mjög ríkan áhuga fyrir því innan HSÍ að gera nýjan starfssamning við Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfara í handknattleik karla. Þriggja ára starfssamningur Snorra Steins rennur sitt skeið á enda í vor. Hann var ráðinn frá 1. júní 2023.
„Ég er mjög ánægður með Snorra Stein, hann er á hárréttri leið með liðið. Það er mikill vilji hjá sambandinu til að halda því samstarfi áfram,“ segir Jón í viðtali við RÚV.

Snorri Steinn var að ljúka sínu þriðja stórmóti með landsliðið. Undir hans stjórn komst landsliðið í undanúrslit á Evrópumóti í fyrsta sinn í 16 ár. Jafnlangur tími er liðinn síðan landsliðið hefur nokkru sinni náð svo langt á stórmóti í handknattleik, þ.e. Evrópu- og heimsmeistaramóti eða Ólympíuleikum.
A-landslið karla – fréttasíða.


