- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Krækir Rúnar í Palicka fyrir lokasprettinn?

- Auglýsing -

Hermt er að Rúnar Sigtryggsson þjálfari Wetzlar hafi sænska markvörðinn Andreas Palicka undir smásjánni þessa daga. Rúnar mun ekki slá á móti frábærum markverði fyrir lokasprettinn í þýsku úrvalsdeildinni og Palicka er sagður geta hugsað sér að kveðja norska úrvalsdeildarliðið Kolstad sem er í fjárhagslegri spennutreyju.


Hen Livgot segir á X að til greina komi að Palicka semji við Wetzlar til skamms tíma áður en leið hans liggur til Füchse Berlin í sumar. Víst er að Palicka hefur ekki áhuga á að vera lengi hjá Kolstad í Þrándheimi og taka á sig nærri þriðjungs launalækkun.

Palicka, sem er 39 ára gamall, hætti að leika með sænska landsliðinu þegar þátttöku landsliðsins lauk EM. Hann hefur hins vegar ekki langan til þess að rifa seglin að fullu.

Palicka lék um árabil í Þýskalandi með THW Kiel og Rhein-Neckar Löwen áður en hann færði sig um set og gekk til liðs við PSG hvar hann var í fjögur ár uns leiðin lá til Þrándheims síðasta sumar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -