Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson skoruðu eitt mark hvor fyrir Kolstad þegar liðið gerði jafntefli við Follo HK, 29:29, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikið var á heimavelli Follo, Stil Arena. Benedikt Gunnar átti einnig eina stoðsendingu.
Sigurjón Guðmundsson markvörður var í leikmannahópi Kolstad í leiknum en virðist ekki hafa komið við sögu ef marka má tölfræði leiksins. Andreas Palicka markvörður er sagður vera á leiðinni frá Kolstad. Hann var ekki í leikmannahópnum í kvöld.
Þetta var fyrsti leikur Kolstad eftir að norski landsliðsmaðurinn Simen Lyse kvaddi félagið í byrjun ársins.
Kolstad er í öðru sæti deildarinnar með 27 stig eftir 16 leiki. Elverum er efst með sama stigafjölda en á leik til góða annað kvöld við Nærbø.
Birta Rún var ekki með
Birta Rún Grétarsdóttir var ekki í leikmannahópi Fjellhammer þegar liðið tapaði með 15 marka mun fyrir Gjerpen, 33:18, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fjellhammer er í 12. sæti af 14 liðum deildarinnar með átta stig þegar 10 umferðir eru eftir.
Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.



